25 ára afmæli SPES í Tógó
AFMÆLISGJÖF SEM TRYGGIR BÖRNUM
FERÐIR Í SKÓLA OG HEILSUGÆSLU
SPES eru alþjóðleg góðgerðarsamtök sem hafa starfað í Tógó frá árinu 2001 og eigum við því 25 ára afmæli.
Markmið okkar er að veita börnum í erfiðum aðstæðum öruggt heimili, umönnun og stuðning til framtíðar. Yfir 180 börn eru í umsjón SPES í tveimur barnaþorpum, í Lomé og Kpalimé og eru þorpin staðfest af tógóskum yfirvöldum sem skjól fyrir börn í erfiðum aðstæðum. Þorpin og starfið þar eru fjámögnuð með stuðningi styrktarforeldra, einkaaðila og opinberra sjóða.
Við þurfum hjálp til að kaupa smárútu fyrir börnin
Eftir tuttugu ára dygga þjónustu þarf að endurnýja smárútu barnaþorps SPES í Kpalimé. Rútan er afar mikilvæg í daglegu starfi samtakanna og notuð til að flytja börnin milli heimilis og skóla. Þá er hún nauðsynleg þegar barn þarf á læknisaðstoð að halda og gerir starfsfólki kleift að flytja það milli heimilis og heilsugæslu án óþarfa tafa. Hún nýtist einnig til að heimsækja og styðja eldri börn sem eru í starfsþjálfun eða hafa flutt aftur til fjölskyldna sinna.
Markmiðið er að kaupa Toyota Hiace smárútu sem kostar um 6 milljónir króna. Nú þegar hefur safnast um þriðjungur upphæðarinnar en við þurfum þína hjálp til að geta klárað söfnunina fyrir nýrri rútu.
Öll framlög skipta máli.
Með afmælisgjöf styðjið þið starf SPES og tryggið börnunum í Togo öruggar ferðir
til og frá skóla og í nauðsynlega heilbrigðisþjónustu.
Hjálpið okkur að hjálpa þeim, þau verða ykkur ævinlega þakklát.
Gefið SPES afmælisgjöf með millifærslu á reikning 357-22-9385, kt. 471100-2930 – Skattafrádráttur fyrir 10.000 eða meira 🙂
Nánari upplýsingar um samtökin: spes.is og spes-international.org