Í haust gátum við fagnað tveimur stórum áföngum á Barnaheimilum SPES í Tógó.
Um miðjan september fluttu 12 fyrstu unglingsdrengirnir af heimili SPES í Lomé yfir í nýbyggt unglingaheimili þar skammt frá. Þetta nýja heimili verður rekið sem sérdeild frá barnaheimili SPES á sama hátt og gert er í Kpalimé. Heimilið er byggt fyrir framtíðina og þarna er nú þegar pláss fyrir 20 unglinga. Áform eru um að byggja síðar annað hús á lóðinni fyrir 20 stúlkur.
Þegar skólastarf hófst í Tógó í byrjun október hófu tveir drengir frá heimili SPES í Kpalimé háskólanám í Lomé. Komlavi Nana byrjaði að læra byggingaverkfræði og Richard Mensah fór í lögfræði. Þeir eru 19 og 20 ára og voru meðal fyrstu barnanna sem komu til SPES. Vinir SPES eru ákaflega stoltir af þessum fyrstu háskólanemum sínum.
Í Lomé verður nú rýmra um börnin á barnaheimilinu og einnig losna pláss fyrir ný börn. Það er því mjög mikilvægt að við finnum fleiri sem vilja gerast styrktarforeldrar eða leggja SPES til reglulega styrki svo hægt sé að taka á móti fleiri börnum.
Skrifað þann 17 November 2017